Hryðjuverkalisti Breta og lokanir á útibúum bankanna.

Svona til að smella fram spurningu í alla Icesave hugsandi kollana.

Hefur einhver metið það tjón sem varð á eignum bankanna vegna aðgerða Breta þegar þeir lokuðu útibúum þeirra og settu Landsbankann á Hryðjuverkalistann alræmda. Með Al Kaida og fleiri flottheitum.

Þarna erum við að tala um verulegan skaða á eigum bankanna. Hvað skyldi það vera í dag með vöxtum?

Mig langar til að fá að sjá þessar tölur.

Hvaða mat skyldi dómstóll leggja á þennan gjörning? Bara allt í góðu?

Persónulega held ég að skuld okkar við Breta sé allt önnur en þeir telja hana vera. Og talandi um siðferði málsins - þá held ég að það sé ansi tvíeggja líka.

Endilega komið nú með svör - og tölur.


mbl.is EFTA-dómstólinn líklegastur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

http://www.svipan.is/?p=4096

Sleggjan og Hvellurinn, 22.2.2011 kl. 18:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband