Er það bara ég - eða hefur sagan kennt okkur að efast?

Svo höfundar skýrslunnar telja stöðu þjóðarbúsins ekki fráleitar.

Einmitt.

Líkt og allt var hér í svimandi góðum málum samkvæmt skýrslum t.d. FME og SÍ á sama tíma og allt var að fara til fjandans.

Einmitt.

Það er reynt að halda afgerandi slæmri stöðu Landsbanka frá almenningi. Bankans sem er í tengslum við það fjármagn sem á að fara í að greiða Icesave skuldirnar - utan okkur landsmenn.

Einmitt.

Og neitað er að afhenda drög skýrslunnar þingmönnum. Og auðvitað veit almenningur ekkert hvað í henni stendur. Um að gera að afgreiða Icesave á multí speed hraða fyrst. Neita þjóðaratkvæðagreiðslu.

Fyrirgef, ég er ekki alveg að kaupa þetta.


mbl.is Trúnaður um skýrslu SÍ um erlenda stöðu þjóðarbúsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ekki ég heldur, ástandið er verra núna er gegnsæi varðar heldur en það var fyrir hrun og ekki varð það gott þá.  Það má segja að það sem að okkur er sagt er í rauninni þversögn, þ.e. þegar sagt er hvítt þá er raunveruleikinn svart - þetta er náttúrlega alveg ótrúlegt.  Er ekki kominn tími til að fara að taka völdin?

atlinn (IP-tala skráð) 15.2.2011 kl. 20:26

2 Smámynd: Sigurður Haraldsson

JÚ ÞAÐ ER KOMIN TÍMI TIL ÞESS OG ÞÓ FYRR HAFI VERIÐ!

Sigurður Haraldsson, 15.2.2011 kl. 22:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband