Hafi einhver vellt fyrir sér siðspillingu og undirlægjuhætti forsvarsmanna Icesave samninganna og ráðamanna, þá er gráupplagt að rifja upp orð Steingríms J. í þessari grein sem birtist í morgunblaðinu 12. des. 2008. Þar segir hann m.a.
Þegar ákveðið var að sækja um lán hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum varaði undirritaður strax sterklega við að í þeirri ákvörðun og því ferli sem Ísland lenti þar inn í gagnvart Alþjóðagjaldeyrissjóðnum fælist jafnframt baneitruð tenging yfir í hina óleystu deilu um Icesave-reikningana. Þessu var í fyrstu neitað og sagt að ekki kæmi til greina að láta kúga okkur til uppgjafar í því deilumáli til þess eins að geta leitað á náðir Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Allt var þetta síðan gefið eftir af ríkisstjórninni. Það sem menn hafa í þessu sambandi kallað lausn er í raun ekkert annað en uppgjöf, ósigur, tap, segir Steingrímur í áliti sínu sem lagt var fram fyrr í dag. "
Einnig var Steingrímur mjög ósáttur við að þáverandi ríkisstjórn þvertæki fyrir að fara dómsstólaleiðina.
"Vísar Steingrímur í fyrri yfirlýsingar ráðherra í ríkisstjórninni að ekki kæmi til greina að láta kúga Íslendinga til uppgjafar í Icesave-deilunni. Rætt hefði verið um lagalegan ágreining sem Ísland ætti skýlausan rétt á að láta á reyna eftir lögformlegum leiðum fyrir gerðardómi eða dómstóli."
Það er alveg með ólíkindum að í dag þverbrýtur Steingrímur á þessum orðum sínum sem þó hafa átt sterkan þátt í kosningu hans til núverandi ríkisstjórnar, ásamt skýrri afstöðu gegn inngöngu í ESB. Núna er Alþjóðagjaleyrissjóði velkomið að vera hér í hlutverki rukkara kröfuhafanna og samningar um Icesave eru nú hans eigin gjörningur.
Það er með ólíkindum að menn sem ganga svona í þverbak við orð gagnvart kjósendum sínum skuli leyfa sér að sitja í ríkisstjórn.
Vill ekki sjá Icesave-ábyrgð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Hrokagikkir og valdníðingar láta sér ekki segjast ég er hér og þið skuluð hlíða þannig er steingrímur frá A-Ö.
EN VIÐ SEGUM NEI ÞANN 9.APRÍL
Jón Sveinsson, 5.4.2011 kl. 08:58
Við segjum nei við kúgunum erlendis og hérlendis. Siðspillingu og tvískinnungi þeirra sem fara með ríkissvaldið. Nei við eignaupptöku bankanna gagnvart heimilunum og nei við átroðslu og ofursköttun á almenning.
Lísa Björk Ingólfsdóttir, 5.4.2011 kl. 11:02
Heyr, heyr...
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 6.4.2011 kl. 01:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.