Einu sinni voru Bláir englar.......

 

Bláir englar

Einu sinni í fyrndinni var hljómsveit sem nefndi sig Bláa engla.  Hún var skipuð þrem frábærum hljómlistarmönnum.  Hér má sjá eftirlifandi meðlimi bandsins en bassaleikari þeirra, Höskuldur Svavarsson lést fyrr á þessu ári eftir langvarandi veikindi.  Blessuð sé minning hans enda drengur góður.

Það skemmtilega við þessa ágætu menn hérna á myndinni er að þeir tengjast bloggheimum hvor á sinn hátt.  Annar þeirra er hér virkur meðlimur utan að vera yours truly.  Síðan hef ég komist að því að hinn á sér líka ektamaka innan veggja bloggheima og er hann einatt nefndur til leiks í skemmtilegum frásögnum.

Jæja ágætu bloggvinir - hver er hvor og hver á hvern?   Cool


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Myndin er svo lítil og ég get ekki stækkað hana með því að klikka á hana?  Ég þekki engann á myndinni enda ekki með stækkunargler á mér

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 10.12.2008 kl. 01:37

2 Smámynd: Lísa Björk Ingólfsdóttir

Ég veit það - ég get ekki stækkað hana án þess að hún fari í rúst.  Skal reyna:)

Lísa Björk Ingólfsdóttir, 10.12.2008 kl. 01:40

3 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Lísa ég er alveg á gati, ég þekki fólkið á myndinni ekkert

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 10.12.2008 kl. 02:04

4 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Kannski Jón Snæbjörnsson??? vinstra megin á myndinni

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 10.12.2008 kl. 02:05

5 Smámynd: Lísa Björk Ingólfsdóttir

Búin að ná henni stærri - ha ha

Lísa Björk Ingólfsdóttir, 10.12.2008 kl. 02:22

6 Smámynd: Lísa Björk Ingólfsdóttir

Það skal tekið fram að nokkuð mörg ár er síðan myndin var tekin.....

Lísa Björk Ingólfsdóttir, 10.12.2008 kl. 02:25

7 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Ég gat skoðað stærri mynd fyrir löngu síðan, þegar ég klikkaði á myndina til hliðar vinstra megin þá efri, núna í miðjunni :) 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 10.12.2008 kl. 02:39

8 Smámynd: Lísa Björk Ingólfsdóttir

Við skulum vona að fleiri kíki hér inn og komi með getgátur áður en ég læt uppi hverjir þetta eru

Lísa Björk Ingólfsdóttir, 10.12.2008 kl. 11:38

9 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hehe, ég er mjög spennt að vita.

Jenný Anna Baldursdóttir, 10.12.2008 kl. 13:59

10 Smámynd: Lísa Björk Ingólfsdóttir

Noh - áhuginn er gífurlegur

Annar þessara töffara er á vinalistanum mínum........

Lísa Björk Ingólfsdóttir, 10.12.2008 kl. 22:30

11 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Eftir mikla rannsóknar og samanburðarvinnu giska ég á : Einar Vilberg og Gunnar Waage

Sigrún Jónsdóttir, 11.12.2008 kl. 16:31

12 Smámynd: Lísa Björk Ingólfsdóttir

Til hamingju Sigrún - þú hefur staðið vel að þessari vinnu þinni.  Þá geturðu væntanlega bent á hver á hvorn...?

Lísa Björk Ingólfsdóttir, 11.12.2008 kl. 18:07

13 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Ég veit að Einar er Jennýjar, þannig að Gunnar er þá þinn

Velkomin í bloggvinahópinn

Sigrún Jónsdóttir, 11.12.2008 kl. 18:31

14 Smámynd: Lísa Björk Ingólfsdóttir

Takk fyrir það.  Þar með er gátan ráðin.  Minn grettir sig ennþá svona hrikalega stundum þegar hann spilar á settið.  Það er alveg hryllilega fyndið....

Lísa Björk Ingólfsdóttir, 11.12.2008 kl. 18:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband