9.7.2010 | 15:41
Hey - þú sem allt þykist vita! Já þú.
Hvað segir sá hópur fólks sem fussar og sveiar yfir þeim sem eru að reyna að ná fram réttlæti fyrir almenning um þetta? Er Jón Ásgeir að reyna að koma sér heim í klíkuna til að fá betri meðferð? Þessi náungi sem hefur átt þátt í því að koma undan peningum og maka eigin krók á kostnað okkar.
Ég tel það nokkuð ljóst. Nú? Haldið þið að það séu ekki klíkur hérna? Aha. Hvernig stendur þá á því að það er t.d. einstaka fólk sem getur hagnast á uppboðsbílum óheppinna kreppufórnarlamba. Þeim er boðið uppá úrvalið fyrir lítinn pening. Ekki satt? Það var talað um þetta í útvarpinu - að hver og einn einasti bílasali vissi af þessu. Ég trúi því, en þú?
Engar klíkur. Hvað með stóru klíkuna sem gerir allt til að fjármagnið, eða auðvaldið eins og sumir kalla það, sé styrkt á allan mögulegan hátt. Þrátt fyrir dóma jafnvel.
Já - nú fussar þú og sveiar. Þetta fólk vill bara ekki borga. Auðvitað er það ekki réttlátt. Sjáið mótmælakjánana sem berja pönnur og potta. Bara lið sem vill ekki borga skuldirnar sínar.
En þú sem allt veist áttar þig ekki á því að þetta fólk og almenningur að stórum hluta vill einmitt borga skuldirnar sínar. En ekki endilega skuldir manna eins og Jóns Ágeirs! Ef það ÞARF að borga skuldir manna eins og Jóns Ásgeirs, þá þarf það fyrst að geta borgað sínar eigin áður en það borgar hans líka. Til þess þarf fólk mismikinn tíma.
Sumir misstu jú atvinnutækin sín og þar með atvinnuna. Fjármálafyrirtæki hirtu svo þessa eign, seldu jafnvel til góðkunninga sem græddi vel, en sá sem tók lánið þarf að borga allt sitt líf. Það finnst þér réttlátt ekki satt.
Hvað með fólkið sem missti vinnuna. Þarf að sjá fyrir fjölskyldunni sinni. Hefur alltaf borgað lánin sín en getur það ekki nákvæmlega þessa stundina? Sérstaklega þar sem lán manna eins og Jóns Ásgeirs (örðu nafni bankahrunið) hefur nú bæst ofaná. Er þetta fólk eitthvað mótmælendapakk?
Nei - ég bara spyr. Þú sem allt þykist vita. Villt ekki láta sjá þig með "þessu fólki" sem ber potta og pönnur núna fyrir framan höfuðstöðvar AGS. Veistu í raun eitthvað? Veistu t.d. hvaða aðferðum AGS beitir til að ná fram kröfum auðvaldsins í hinum stóra heimi? Og er þér sama? En ef þú misstir nú vinnuna á morgun og værir komin í vanskil eftir nokkra mánuði? Væri þér ennþá sama?
Þessi litli en öflugi hópur fólks sem sumir kalla "þetta fólk" - mótmælendurnir - eru að berjast fyrir sanngirni og réttlæti til hana öllum. Ekki bara sér, heldur þér líka. Vissirðu það? Þetta er fólk úr öllum stéttum. Skuldugt eða ekki skuldugt - vissirðu það?
"Þetta fólk" er meðal annars ég - hvenær sem ég hef tíma til að verja réttlæti almennings. Og er stolt af því. Mér er nefninlega ekki sama um það hvernig öðrum líður og hvort þúsundir íslendinga verða fátæktinni að bráð. Bara útaf því að Jón Ásgeir og vinir hans fóru á einkaflipp með peninga sem voru ekki til.
Vissir þú þetta? Nú - ekki?
Hvernig væri þá að sýna samstöðu!
![]() |
Réttarhöldin ættu heima á Íslandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.7.2010 | 22:59
Áskorun til Samtaka atvinnulífsins
Án þess að vera á nokkurn hátt að véfengja það að launahækkanir eru nauðsynlegar til að mæta mikilli kaupmáttarrýrnum og aukinni skuldabyrgði - er þó eitt sem ég tel Samtök atvinnulífsins geta gert í því árferði sem nú er.
Hér með skora ég á Samtök atvinnulífsins að skora á forsvarsmenn fyrirtækja um að lækka eins mörg stöðugildi og unnt er niður í 70% og gefa þar með aukið svigrúm fyrir fleiri að komast inn í atvinnulífið. Það er fullt af fólki með góða menntun og reynslu sem berst fyrir heimilum sínum. Fólk af öllum stéttum. En þau fáu störf sem í boði eru eru alltaf 100% stöðugildi líkt og flest þau sem eru fyrir. Þarna mætti koma þúsundum einstaklinga á atvinnumarkað.
Með þessu mætti bjarga mörgum úr neyð og hjálpa þar með hjólum atvinnulífsins í gang að nýju. Ef samstaða fæst hjá þjóðinni í heild um að vinna okkur úr þessari kreppu með öllu mögulegu móti þá getur róðurinn orðið mun léttari - og öllum til hagsbóta.
Stöndum öll saman og náum árangri.
![]() |
Reynt að ná langtímasamningi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
8.7.2010 | 21:10
Finnur hann þef af falli ríkisstjórnarinnar?
Þá er auðvitað um að gera að tala sama tungumál og þorri þjóðarinnar - svona rétt fram að kosningum. Eins og síðast. Eins og flestir þessir menn gera.
Ég man eins og gerst hefði í gær hvernig Steingrímur J. var alfarið á móti inngöngu í ESB. En fyrir ráðherrastól, þá var nú annað á teningnum.
Hvort skyldi Bjarni hafa kosið með eða á móti aðildarviðræðum á sínum tíma? Hvað hefur hann lagt til málanna fyrir almenning í landinu?
Kannski fer maður að sjá hann á mótmælunum - það væri þá aldrei.
![]() |
Umsókn Íslands verði dregin til baka |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
8.7.2010 | 17:09
Bless bless AGS!
Þeir sem hafa lesið sig til um starfsemi AGS vita ef til vill að í 30 löndum af 41 hafa þeir skilið eftir sig sviðna jörð. Argentína og Jamaika eru tvö þessara landa.
http://www.youtube.com/watch?v=YoIJPwfsbqg&feature=related
Hér má sjá brot af sögu Jamaica. AGS lánaði þeim með þá vitneskju að þeir þyrftu að selja þeim sál sína til að borga það tilbaka. Auðlindir eyjunnar, atvinnuvegir jafnaðir við jörðu - það skipti engu máli. Það tók uþb tvö ár.
Það þarf ekki að eyða löngum tíma til að lesa sér til um vinnubrögð AGS og hvernig þeir gjörsamlega vaða yfir - allt fyrir auðvaldið. Viðskiptabankana - fjármálafyrirtækin. Almenning má fórna ef með þarf.
Ég mæli með að fólk skoði þetta, kynni sér efnið. Life and debt er líka mögnuð frásögn.
![]() |
Mótmælt við skrifstofu AGS |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
7.7.2010 | 14:49
Hvað ef tilmælin hefðu verið þau að greiða til baka ofgreidd lán?
Hefðu viðskiptabankarnir þá boðið viðskiptavinum sínum að koma og þiggja 5000 kr af hverri milljón höfuðstóls næstu mánuðina? Held ekki.
Hvað ef viðskiptavinurinn segur - nei takk - ég bíð úrskurðar. Mun þá viðskiptabankinn frysta viðkomandi lán á meðan? Eða leggur hann á dráttarvexti af skuldinni og fer jafnvel í innheimtuaðgerðir?
Það þarf að útskýra þetta svolítið betur fyrir neytendum - sem eigu jú með réttu að njóta vafans. Hvað stendur þeim raunverulega til boða og hverjar verða aðgerðirnar ef þeir sætta sig ekki við þetta en kjósa að njóta vafans?
Það er merkilegt hvað það eru alltaf fáir fletir á kostaboðum viðskiptabankanna. Og ef tillit er tekið til neytanda - engir fletir.
Það er ekki búið að fella úrskurð um þetta ennþá. Neytendur hafa beðið réttarstöðu sinnar í tæp tvö ár. Held að fjármálafyrirtæki geti rétt eins vel beðið! Þeim er það skylt. Það eru ennþá lög í þessu landi og ef það á ekki að fara eftir þeim, til hvers eru þau þá?
![]() |
Bankar fara að tilmælum Samtaka fjármálafyrirtækja |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
7.7.2010 | 00:40
Ef ungir Íslendingar vilja vinna yfirleitt......
.....ættu þeir að huga að því hvert verið er að fara með okkur undir stjórn AGS og ríkisstjórnar sem hefur tvímælalaust búið til skjaldborg um fjármálastarfsemi og banka sem að stórum hluta er í eigu erlendra lánadrottna bankahrunsins.
Þetta er svolítið hjákátleg frétt því að krabbameinslæknar hafa þó altént ennþá vinnu á Íslandi meðan margir aðrir hafa það ekki. Auðvitað er nauðsynlegt að láta svona hluti í fjölmiðla - læknar eru jú svo skelfilega illa launaðir að enginn ætti að taka það í mál að fara í margra ára háskólanám til þess að gerast slíkur. Hvað þá hjúkrunarfræðingur, ljósmóðir, lyfjatæknir. Nú eða viðskiptafræðingur, hagfræðingur, lögfræðingur, sálfræðingur - og alls ekki stjórnmálafræðingur.
Nei - best væri að loka öllu háskólabatteríinu og taka strax ferjuna til norðurlandanna. Það komast jú ekki allir strax til Bandaríkjanna - það þarf ákveðið leyfi. Svo getur landið bara alið á skuldlausum borgurum sem fengu óverðtryggð lán fyrir tíma verðtryggingar og eru til í að borga brúsann. Allir aðrir geta bara hypjað sig.
Jesús Pétur og allt hans lið - hverjum skyldi detta sú óskammfeilni til hugar að stunda krabbameinslækningar á Íslandi? Hvað eru þeir með í mánaðarlaun? 150þús? Eins og þeir sem eru á bótum? Kannski er réttast að stofna sjóð fyrir lækna á Íslandi svo þeir geti haft ofaní sig og á. Og séð börnunum sínum farborða.
Úps - nei. Læknarnir eru víst ekki á bótum - ennþá. Bara illa launaðir.........
![]() |
Erfitt starf og illa launað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (23)
6.7.2010 | 20:23
Þetta væri ekki ónýtt að sjá.
Það er allt of mikið af ljótum leyndarmálum víðs vegar um heim. Það væri hreinsun af því að fá þó ekki væri nema hluta þeirra uppá borðið þannig að hægt væri að vinna úr þeim á sómasamlegan hátt. Auðvitað eru mér málefni okkar eigin þjóðar hugleiknust, en - spilling er alþjóðleg. Auðvitað er aldrei hægt að koma alveg í veg fyrir spillingu. En hvert einasta mál sem upplýsist er sigur fyrir almenning.
Ég tek hatt minn ofan fyrir þeim sem leka spillingargögnum!
![]() |
Stal skeytum um Íslendinga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
6.7.2010 | 18:16
Getur VERIÐ að landsmenn eigi ekki peninga?
Já - fólki finnst undarlegt að bílaumferð minnki. Kannski finnst fólki líka undarlegt að verslun minnki sem og ferðir til útlanda. Ef til vill finnst fólki líka skrýtið að um 1500 fjölskyldur leiti aðstoðar til stofnana eins og Fjölskylduhjálpar, Mæðrastyrksnefndar og annarra slíkra mánuð hvern!
Hvern eru dagblöðin að reyna að blekkja? Þá sem ennþá hafa vinnu, geta borgað og telja sér trú um að allt sé í lagi og kreppan sé búin?
Landið er undir ofurstjórn AGS. Eigendur bankanna eru erlendir lánadrottnar að stórum hluta. Ríkisstjórnin slær ryki í augu almennings og segir allt vera á góðri leið..... hvert?
Össur slær um sig og segir að EBS sé lausnin - ekkert hefði gerst slæmt hér fyrir tveim árum ef við hefðum verið í Evrópuliðinu. Á meðan framselja stjórnvöld auðlindir okkar svo lítið beri á - sem borgun fyrir eigin mistök.
Lítill - hjá AFSKAPLEGA LÍTILL hópur af fólki mótmælir því sem er verið að gera okkur. Þjóðinni í heild.
ER ÖLLUM ALVEG SAMA? EÐA EIGA "HINIR" AÐ REDDA ÞESSU?
Þetta er spurning til þjóðarinnar. Hvar eruð þið?
![]() |
Mikill samdráttur í bílaumferð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
6.7.2010 | 15:47
Mótmæli ekki að fjara út!
Mótmælin stóðu frá 12 - 13:00 og er því rangt með það farið að þau hafi verið að "fjara út". Fólki er misboðið. Alvarlega misboðið. Alþingi gengur þvert á lög Hæstaréttar með tilmælum sínum um vexti á gengistryggð lán. AGS stjórnar hér öllu í skugga ríkisstjórnarinnar. Þjóðin er smám saman að vakna til meðvitundar - og ekki seinna vænna!
Stöndum saman.
![]() |
Mótmæli að fjara út við Seðlabanka |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
2.7.2010 | 12:18
Wake up call!
Ef þetta ætti ekki að fá hárin til að rísa á almenningi - og ríkisstjórninni, þá veit ég ekki hvað þarf til. Og þetta er bara í Kópavogi. Svo er það Mæðrastyrksnefnd og Fjölskylduhjálpin.
Við EIGUM ekki að ÞURFA að líða þennan skort. Við erum auðug þjóð af mannauð og auðlindum. Það eru til úrræði sem geta aðstoðað fólk til að komast á réttan kjöl eftir að fjármálastofnanir kipptu undan okkur fótunum. En þeim úrræðum er sópað undir teppi. Þess í stað er aðaláhersla á að styðja og styrkja bankana og fara eftir þeim fyrirmælum AGS sem hnepptu Argentínu í fátækt og ánauð.
Nú þegar er þetta farið að bitna illilega á börnunum í landinu. Börn sem búa við fátækt bíða þess aldrei bætur, það markar djúp spot. Margir einstaklingar eru brotnir á sálinni vegna vonleysis og sjá ekki útúr svartnættinu. Geta ekki séð fyrir börnunum sínum meðan þeir horfa kannski á nágrannabörnin í velsæld. Þessir erfiðleikar aukast og taka ekkert tillit til þjóðernis, menntunar eða annars. Angar eymdarinnar eru að dreifa úr sér um þjóðfélagið eins og krabbamein.
Það er hægt að stöðva þetta og það verður að stöðva þetta.
Þjóðin verður að rísa upp og sameinast um ákall til stjórnvalda að enda þetta ástand. Eða víkja og hleypa þeim að sem þora að rísa undir eigin merkjum, hundsa AGS og erlenda pólitík og takast á við okkar vanda.
Þetta er ákall til ykkar!
![]() |
Sífellt fleiri þurfa aðstoð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)