4.6.2010 | 19:19
Þrælar bankakerfisins, AGS og bráðum ESB?
"The privilege of creating and issuing money is not only the supreme prerogative of Government, but it is the Government's greatest creative opportunity" (Abraham Lincoln).
Abraham Lincoln var einn af vinsælustu forsetum Bandaríkjanna. Enda var hann einn fárra sem kom þjóð sinni á réttan kjöl með því að láta ríkisstjórnina prenta sína eigin peninga í stað þess að fá lán á háum vöxtum til að greiða stríðsskuldir. Með þessu jók hann velferð bandaríkjamanna til muna.
En hver var forsagan? Jú - Seðlabanki Bandaríkjanna var lagður niður í þeirri mynd að vera í höndum ríkisstjórnar og viðskiptabankarnir tóku völdin. Þeir veittu lán gegn háum vöxtum, einnig stjórnvöldum. Með þessu móti margfölduðust skuldir umfram það peningamagn sem í raun er í umferð.
Þegar þetta leiðir til kreppu þá er það vissulega hagstætt fyrir viðskiptabankana að geta tekið heimilin af fólki á mjög lágu verði - broti af því sem virðið í raun er. Lánveitandinn getur ekki annað en grætt á kreppunni.
En Abraham Lincoln fann svar við þessu. Ríkið skyldi prenta sína eigin peninga - skuldlaust - og koma þeim í umferð til að greiða niður skuldir ríkisins.
Fjármálaheimurinn í Evrópu skalf. Með þessu móti mundi auðurinn renna til bandaríkjanna sem prentaði peninga án skuldsetningar og gróðakerfi viðskiptabankanna mundi líða undir lok. Þetta yrði að stöðva.
Abraham Lincoln var ráðin af dögum.
Á fáeinum árum voru magn peninga í umferð í bandaríkjunum minnkað um 75% sem leiddi til þess að aftur voru kreppudagar og fátækt meðal íbúa.
Þetta er mjög stutt frásögn af sögu mikils manns sem sagði fjármálaheiminum stríð á hendur. Þorum við að gera slíkt hið sama? Eða viljum við að lánadrottnar hirði eignir okkar á slikk og stjórnvöld framselji þann rétt okkar að geta nokkurn tíma prentað okkar eigin gjaldmiðil og stjórnað því magni sem er í umferð. Og skapað velsæld á Íslandi með góðri stjórn án þess að vera undirokuð af hinum stóru risum sem vilja gleypa okkur með húð og hári.
Ég bara spyr?
![]() |
Erfitt að ná endum saman |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
29.5.2010 | 09:19
Stjórnvöld standi við orð sín - það er það minnsta.
Ég veit að svona sem einstakur bloggari sem ekki lætur mikið í sér heyra, eru áhrif manns kannski ekki mikil. En samt er nú svo að nú ættu allir að rísa upp á afturfæturnar og mótmæla af krafti.
Í kjölfar hins mikla hruns sem kostaði ærið marga atvinnunna og fjárhagslegt öryggi og gerði eignir fólks að engu, lofuðu stjórnvöld skjaldborg um heimilin. Ef stjórnvöld ættu einhverntíma að efna eitthvert loforð þá er það þetta loforð. Íbúðir standa víða auðar eða eru hálfkláraðar. Um 1500 íbúðir ef ég man rétt. Og nú á að kasta heilu fjölskyldunum út á Guð og gaddinn vegna óráðsíu og mistaka sem þær höfðu ekkert með að gera. Þetta, gott fólk, er ekki sanngjarnt.
Hvernig byggjum við upp neysluþjóðfélag að nýju ef fólkið í landinu hefur ekki efni á að lifa? Hagur hvers er að ýta undir frekari fátækt og vansæld?
Persónulega vil ég skora á stjórnvöld að afgreiða öll þau frumvörp sem fyrir liggja og eru til þess ætluð að hjálpa fjölskyldum í landinu þegar í stað. STRAX. Og afstýra þessu stórslysi.
Svo vil ég sjá lyklafrumvarpið verða að veruleika. Það eru mannréttindi hvers einstaklings að missa þó einungis það sem veð er tekið í - ekki vera sett í nauðung til framtíðar!
Koma svo!
![]() |
Reynt að forðast hamarinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
21.5.2010 | 03:59
Evrusvæðið hlýtur að leysast upp!
Þrátt fyrir þessi orð Dominique Stauss-Kahn verð ég að velta vöngum. Hversu betur er Evrópa sett með einn gjaldmiðil? Eitt stórt hagkerfi? Það þýðir að allt það sem hagfræðin byggir á - fórnarkostnaður og samkeppni verður að engu. Fórnarkostnaður - það er þegar þeir sem eru hæfari til að framleiða eitthvað með lægri kostnaði og selja örðum til að hagnast á því. En hver er hagnaðurinn ef hagkerfið er orðið of stórt? Samkeppni er svipuð. Markaðurinn ræður öflunum og verðinu með því að geta boðið vörur á hagkvæmu verði. Hvað verður um samkeppni ef það eru einungis tvö stór hagkerfi að keppa hvort við annað - Dollarahagkerfið og Evruhagkerfið?
Erum við ekki að skoða hlutina til skamms tíma. Hagstætt að hafa Evru vegna innflutnings? Hvað með útflutning? Eru þessir háu herrar ekki í raun að rústa því hagkerfi sem hefur haldið öllu gangandi fram til þessa?
Lifum við ekki að mestu á mismun á útflutningi og innflutningi - og þar með mismun á gengi? En hvað ef þetta er allt orðið sami gjaldmiðillinn? Hefur einhver sett upp haglíkanið miðað við það?
Ég held að evrusvæðið ætti að leysast upp og það hagkerfi sem hefur knúið okkur fram til þessa ætti að gera það áfram. Mestu áföllin hafa verið af mannavöldum - s.s. stríð - stríðskostnaður og spilling í þjóðfélögum. Evra lagar það ekki. Lærum af mistökum í stað þess að breyta því sem virkar.
Það er allavega mín skoðun.
![]() |
Engin hætta á að evrusvæðið leysist upp |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
20.5.2010 | 19:43
En hvað gerist ef bankarnir þurfa að kaupa öll íbúðalánin?
Það er alltaf gott að læra af fortíðinni, eða segjast ætla að gera það. En staðreyndin er samt sú að fjármálafyrirtæki eru í þessum bransa til að ávaxta sitt pund. Nú hefur stór hópur landsmanna misst eignahlutfall sitt í íbúðum og öðru vegna bankahrunsins. Samt er þeim gert að borga. Borga fyrir mistök og græðgi fjármálafyrirtækja og stjórnenda þeirra (fyrrum).
Með þessu eiga þeir sem enn strita við að halda sínu að axla ábyrgð sem er ekki þeirra og síðan færast skuldirnar jafnvel yfir á börnin okkar. Ekki smart.
Hvað ef allir þeir sem hafa tapað eignarhlut sínum hættu gjörsamlega að borga og bankarnir yrðu á endanum að taka til sín allt þetta húsnæði? Ef lyklafrumvarpið kemst í gegn sem ég einlæglega vona - því það er réttur okkar að veð séu veð en ekki ævifangelsi - þá er það kannski besta lausnin.
Húsnæðið fer allt yfir á bankana og til þess að losna við eignirnar þyrftu þeir að selja þessar eignir miðað við eftirspurn. Sennilega mundi íbúðarverð snarlækka. Verðið sem bankarnir sprengdu upp áður með offramboði á lánum með lægri vöxtum mundi mögulega ganga til baka. Til þess að auðvelda bönkunum sölu húsnæðis væri jafnvel hægt að semja við þá um endurkaup á íbúðum sínum á lægra markaðsverði og hagstæðari lánum.
Það má alveg hugsa um þetta. Það erum nefninlega við - neytendur - sem ráðum svolítið ferðinni með okkar hegðun. Með smá stuðningi frá Alþingi með lagasetningu um lyklafrumvarp væri hægt að snúa þessari martröð við og ná hlutum í eðlilegt horf.
Valið er okkar - vonandi.
![]() |
Tækifæri til að læra af fortíðinni aldrei betri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
16.4.2010 | 23:11
Sko - við höfum ýmsar aðferðir til að hnekkja á öðrum!
Veriði bara góð við okkur Íslendinga og þá kannski förum við og tölum við eldfjöllin okkar og biðjum þau að vera til friðs.
Við erum búin að sýna það og sanna að við erum örsmá - en máttur okkar er mikill. Þetta með fjármálin mátti samt alveg missa sig........
Smá grín svona á föstudagskveldi.
![]() |
Tapa 25 milljörðum á dag |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
16.4.2010 | 15:37
Fréttir herma.......
Fréttir herma að hið látna íslenska hagkerfi hafi átt þá síðustu ósk að öskunni verði dreift yfir Evrópu !
![]() |
Miðað við að það gjósi áfram |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.4.2010 | 04:59
"En okkur munar um eina Markarfljótsbrú" segir Steingrímur....
Jedúddamíasta segi ég nú bara. Hér logar allt í fjármálakreppu vegna aðgerðarleysis stjórnvalda, fáránlegra samninga við Breta og Hollendinga útaf Icesave og siðblindu fyrrum stjórnenda/eigenda bankanna. Og svo segir fjármálaráðherra " En okkur munar um eina Markarfljótsbrú" !!!
Halló - er ég á sömu plánetu og þið? Ætlar Reykjavíkurborg að fara að stækka golfvelli? Er fjármálaráðherra að hampa björgun einnar brúar? Meðan fókið sveltur og hefur ekki við að fara til dyra til að taka við stefnum, þar sem Skjaldborgin um heimilin voru orðin tóm?
Halló - er ríkisstjórning hlaupandi uppum fjöll og firnindi með grænsápu til að draga athyglina frá því sem er að gerast í þjóðarbúinu? Nei - smá grín auðvitað - en samt.
HAALLLÓ!
![]() |
Skörðin eru talin hafa bjargað brúnni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
14.4.2010 | 18:19
Minning til föður míns
Ófáar gleðistundir höfum við átt saman og börnin mín dýrkuðu þig og dáðu, enda enginn venjulegur afi. Ég var ekki há í loftinu þegar þú kenndir mér manngangin í skák, glímu og Hornafjarðarmanna. Margar voru ferðirnar í Munaðarnes þar sem ekki var hægt að spila Lúdó nema afi væri með. Því þú varst alltaf svo kíminn og þóttist vera agalega tapsár á þann hátt að börnin skellihlógu. Og afi var dreginn út í minigolf, útá róló eða hvert sem helst.
Þú stóðst við hlið mér þegar ég skírði frumburðinn minn hann Barða sem var þér svo ákaflega kær. Þú hefur samglaðst mér á mínum gleðistundum, hughreyst mig á erfiðum stundum og stappað í mig stálinu þegar ég hef þurft á að halda. Og alltaf hafðir þú óbilandi trú á mér.
Þú hefur leitt mig inn kirkjugólf - hönd í hönd. Í dag, elsku pabbi minn, var komið að mér að bera þig út kirkjugólfið í fallegri blómumskrýddri kistu ástamt systrum mínum og frænku. Þú vildir hafa hljótt um þessa stund. Engu að síður flugu ástvinir þínir frá ýmsum löndum hingað heim til að kveðja þig - þig sem varst öllum svo kær sem þig þekktu.
Elsku pabbi. Ég veit að núna líður þér vel. Þú ert búinn að berjast við erfiðan sjúkdóm sem dróg úr þér allan mátt og allan þann mikla styrk sem þú hafðir. Líkaminn var orðinn þér fjötur um fót. En þó svo hann sé horfinn okkur þá munt þú vera með okkur alltaf.
I love you.
Lísa
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
13.4.2010 | 15:02
Hvernig gat þetta farið framhjá FME?
Í skýrslu FME frá því í ágúst 2008 kemur eftirfarandi fram:
14.08.2008
Icelandic banks pass the FME stress test
The four largest commercial banks all pass the regular stress test of the Icelandic Financial Supervisory Authority (FME).
The FME has calculated the effects of simultaneous shocks on capital ratios of the largest Icelandic banks. The shocks imply that a financial undertaking must be in a position to take on certain setbacks that simultaneously may lead to changes in the value of shares, market bonds, non-performing/impaired loans and appropriated assets and the Icelandic krona without having its capital adequacy ratio drop below 8%. It should be mentioned that the stress test is a point test. Consequently the capital ratios of the banks at the end of Q2 2008 reflect the effects of the turbulance in the financial markets in the second half of the year 2007 and the first half of the year 2008, i.e. before the calculation of the effect of the stress test. In addition to the formal stress tests the FME conducts various stress tests as deemed necessary in each case.
The Director General of the FME, Mr. Jónas Fr. Jónsson:
The results from the stress-test indicates that the capital ratios of the banks are solid and can withstand considerable financial shocks. Shareholders and management of the banks need to focus on maintaining strong capital and even increase it, as capital levels need constantly to be reviewed in light of different risk factors in the operations of each company.
The effects of aforementioned simultaneous shocks on capital ratio are following as of end of Q2 2008.
http://www.fme.is/?PageID=14&NewsID=304
Auðvitað getur þetta ekki staðist. Í rannsóknarskýrslu Alþingis kemur fram að bankarnir sjálfir hafi túlkað áhættuna á bak við hin ýmsu viðskipti. Hefðu þau verið túlkuð rétt samkvæmt stöðlum þeim sem FME gefur út (BASIL II) hefði útkoman verið nokkuð önnur.
Til að mynda má sjá í Árskýrslu Landsbankans 2007 að 9 viðskiptavinir hafi útlán yfir 10% af eigin fé bankans en enginn fari yfir 25% sem er það hámark sem staðlar FME segja til um. En annað kemur í ljós við lestur rannsóknarskýrslunnar.
Sjálf gerði ég nokkra útreikninga á CAR Landsbankans fyrir um ári síðan útfrá upplýsingum sem birtust í Morgunblaðinu árið vegna lána til Björgólfsfeðga. Á þeim tíma voru ekki nægar upplýsingar til að reikna út hvernig staða bankans var raunverulega en eitthvað var ég samkvæmt útreikningum mínum að miða við CAR 5,4% fyrir Landsbankann eftir stresstest þegar tillit var tekið til útlána til eigenda bankans og tengdra félaga. Það verður spennandi að reikna þetta út aftur með þeim upplýsingum sem nú liggja fyrir.
![]() |
Skynjuðu að dansinum var að ljúka |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.4.2010 | 11:14
Vér smælingjar í tómu tjóni vegna þess sem aðrir kalla "tómt rugl"
Fyrirgefðu monsiour fyrrverandi bankastjóri. Hefurðu gleymt hinni margrómuðu íslensku verðtryggingu? 4,1% vextir á tugum miljóna í 40 ár eru slatti í poka kallinn minn. Svo ekki sé talað um það að verðtryggingin kemur í veg fyrir það að sá sem lánar geti tapað á lánveitingu sinni. Það eru ekki bara þeir sem eru með erlendu lánin sem sitja í drullusúpu uppfyrir haus. Verðbólgan er búin að vera í essinu sínu og gerir hinum lífið leitt að sama skapi. Svo er ýmisskonar "tómt rugl" hjá stjórnendum bankanna búið að hafa af okkur smælingjunum vinnuna, bílana, húsin og tja eiginlega bara eðlilegt líf!
En innlánsvextir á bankainnistæðureikningum uppá 12% - svosem eins og Icesave reikningum - það er tómt rugl og stenst engar forsendur. Meira að segja mega hlutabréfaeigendur sem þó vita að áhætta fylgir slíkum viðskiptum, þeir mega telja sig heppna að fá 12% arð af sínum bréfum. Og að veita lán til hlutabréfakaupa með ekkert að veði nema bréfin sjálf - sem eru jú áhættuviðskipti - það er "tómt rugl". Hvar lærðu þessir menn sín fræði? Allavega hefði endurmenntun kannski verið við hæfi!
![]() |
Húsnæðislánin voru tómt rugl" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)