21.8.2010 | 01:37
Eru þessir ráðherrar ekki lögbrjótar?
Það er alltaf merkilegt að skoða lög. Sérstaklega þau sem manni finnst ríkisstjórnin og ráðherrar brjóta í bak aftur. Ice-save, gengistryggðu lánin, loforð til AGS um að setja nauðungaruppoð í gang til höfuðs heimila almennings í október. Listinn getur verið endalaus en kíkjum á eftirfarandi:
Lög um ráðherraábyrgð 1963 nr. 4 19. febrúar
2.gr. Ráðherra má krefja ábyrgðar samkvæmt því, sem nánar er fyrir mælt ílögum þessum, fyrir sérhver störf eða vanrækt starfa, er hann hefur orðiðsekur um, ef málið er svo vaxið, að hann hefur annaðhvort af ásetningi eðastórkostlegu hirðuleysi farið í bága við stjórnarskrá lýðveldisins, önnurlandslög eða að öðru leyti stofnað hagsmunum ríkisins í fyrirsjáanlegahættu.
10.gr. Loks verður ráðherra sekur eftir lögum þessum: a. ef hann misbeitir stórlega valdi sínu, enda þótt hann hafi ekkibeinlínis farið út fyrir embættistakmörk sín; b. ef hann framkvæmir nokkuð eða veldur því, að framkvæmt sé nokkuð, erstofnar heill ríkisins í fyrirsjáanlega hættu, þótt ekki sé framkvæmd þesssérstaklega bönnuð í lögum, svo og ef hann lætur farast fyrir að framkvæmanokkuð það, er afstýrt gat slíkri hættu, eða veldur því, að slík framkvæmdferst fyrir.
13.gr. Hafi ráðherra bakað almenningi eða einstaklingi fjártjón með framkvæmd eða vanrækslu, sem refsiverð er eftir lögum þessum, skal og þegar þess er krafist, jafnframt hegningunni dæma hann til að greiða skaðabætur, en um skaðabótaskyldu hans fer eftir almennum reglum.
![]() |
Ekki komin dagsetning á viðræður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 01:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
30.7.2010 | 15:36
Evrópusambandið reynir að klóra í bakkann.
Auðvitað vissu þessir háu herrar það sem aðrir vissu, að ríki ættu ekki að þurfa að bera ábyrgð á bankainnistæðum einkabanka. Glöggir menn (og konur) voru búnir að benda á þetta. Eins voru lög um ábyrgðir tengdar algeru bankahruni heillar þjóðar ekki til staðar sem slíkar, en frakkar höfðu þó í sínum lagabálkum tilgreint að ábyrgð á slíku væri ekki ríkisins.
Nú er reynt að ýta því að okkur að rangt hafi verið staðið að innleyðingu tilskipunar um innistæðutryggingar. Hafi svo verið - er þá ekki fullseint í rassinn gripið að benda á það núna? Hefði ekki átt að gera athugasemd við það í upphafi?
Ég hugsa að hinir háu herrar sem velgja stólana í Brussel hafi ekki gert sér grein fyrir sterkum vilja Íslensku þjóðarinnar og andstöðu hennar við ESB. Setja ríkisstjórnina í rassvasann með hótunum og látum og þar með væri málið dautt og landið í höfn. Fiskimið, auðlindir og allur pakkinn.
Ég held að Össur ætti nú bara að fara að hundskast heim og hætta þessu japli þarna úti. Þjóðin hefur margsinnis sýnt það í skoðanakönnunum að hún vill ekkert með ESB hafa. Og þjóðkjörnir fulltrúar okkar OG MÁ ÉG ÞÁ BENDA Á VG SEM VORU KJÖRNIR VEGNA ANDSTÖÐU VIÐ ESB skulu værsgo hlusta á sína þjóð.
Hér þarf að byggja upp heilbrigt kerfi og ekki seinna vænna en að byrja strax.
![]() |
Innleidd án athugasemda |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.7.2010 | 15:28
Kerfishrun og lagamál - berum ekki ábyrgð.
Það kemur fram í löggjöf ESB að munur er á almennu gjaldþroti banka annarsvegar og kerfishruni hinsvegar. Íslendingar stóðu frammi fyrir kerfishruni þegar allt bankakerfið fór á hliðina.
Lögfræðingar víða um heim hafa bent á að okkur beri ekki skylda til að ábyrgjast þessar innistæður og nú kemur það sama frá framkvæmdastjórn ESB um ríki EES.
Það er hreinlega ekki hægt að undanskilja Ísland. Hverra var ábyrgðin á að innistæðutryggingarsjóður hvers banka væri í lagi? Væntanlega bankans sjálfs og að sjálfsögðu hefur FME haft eftirlitsskyldu þar um.
Fjöldi fólks tapaði fé úr sjóðum hér á Íslandi. Nú hef ég hreinlega ekki kynnt mér hvað varð um sjóð 9, eins og hann var kallaður, en þar átti fólk ekki von á að fá sitt til baka.
Þetta með jafnfæðisregluna er því ekki alveg skothelt að mínu mati.
Eins höfðu háttsettir menn á Bretlandi vitneskju um fjárhagslega erfiðleika bankanna og að ekki væri allt sem skyldi, og sendu hingað menn til að kanna þessi mál löngu fyrir hrun. Svo hvers vegna tóku Bretar og Hollendingar ekki til sinna ráða?
Hvernig var með eftirlitskerfi hjá Bretum og Hollendingum sjálfum? Var engin ábyrgð þar?
Og af hverju er Íslendingum neitað lagalegu ferli á þessu máli?
Það er vegna þess, að samkvæmt ýmsum lögum og reglugerðum eigum við í raun ekki að borga Icesave. Hér er verið að leggja heila þjóð á hliðina vegna ríkisskuldar sem er í raun ekki til staðar, nema á pólitískum vettvangi.
Ef hengja á þetta í neyðarlög fyrri ríkisstjórnar þá má víst vera að þau lög séu véfengjanleg. Þau lög eru mannanna verk og má afnema. Það er ennþá í okkar valdi.
Nú ættu Íslendingar sem aldrei fyrr, að rísa upp og krefjast réttlætis!
![]() |
Bera ekki ábyrgð á innstæðum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
22.7.2010 | 09:05
Sama lausn fyrir alla?
Vá - ef höfðingi Icesave má fara þessa leið, halda eigum sínum en greiða arðinn uppí skuldir - mega allir aðrir það þá ekki líka? Heimilin, litlu fyrirtækin - já - jafnvel ríkið?
Enginn þarf að selja neitt - engar aðfarir - engin gjaldþrotaskipti. Allir borga bara það sem þeir hafa afgangs, eða arð af sínu og málið er dautt!
Eigum við ekki að bera þessa leið upp fyrir AGS?
Eða er það bara auðvaldið sem má hegða sér svona? Þetta sem skjaldborgin var reyst fyrir?
Ég bara spyr.
![]() |
Allur arður Björgólfs til kröfuhafa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Það er greinilega ábatasamt að setja fyrirtæki og fjölskyldur út á gaddinn með öflugum samdrætti í opinbera geiranum og síðan skattahækkunum. Það væri öllu vitlegra að efla atvinnulíf í landinu með því að fjölga störfum og setja peninga inní efnahagskerfið og fá þannig auknar tekjur í formi skatta og neysluskatta frekar en að taka hvert lánið á fætur öðru, greiða milljarða í atvinnuleysisbætur, málaferli og kostnað vegna aðfara á heimilin. Lækkun skatta er t.d. mun öflugri leið þegar svona árar. Það hefur margoft sýnt sig að þær aðgerðir sem AGS boðar til að viðhalda og efla efnahagsöryggi er ekki að virka. En samt halda þeir úti sömu aðgerðum og senda fleiri ríki á vonarvöl með þeim.
Ríkisstjórnin er eins og blindur maður með blindrahundinn AGS. Verst að blindrahundurinn sá var þjálfaður til að elta uppi mörgæsir á Suðurskautslandinu.........
![]() |
265 þúsund á hvern Íslending |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
16.7.2010 | 20:54
Reglugerðarbreyting gerð til að flýta fyrir inngöngu Íslands í ESB!
Það er eitthvað stórlega undarlegt í gangi.
ESB er greinilega mjög umhugað að fá Ísland í sambandið og það strax. Í gær tók formlega gildi reglugerðarbreyting sem tekur á því að Ísland fái nú þegar ýmsa aðstoð við innsetningarferlið í ESB.
http://www.welcomeurope.com/news-en-Iceland-to-receive-pre-accession-funding--6372.html
Samfylkingu með Össur þarna í farabroddi er semsagt að takast að koma yfirráðum á fiskimiðum Íslendinga í hendur ESB og þau eru að flýta sér. Sennilega hrista aðgerðir mótmælenda verulega upp í áhrifamönnum - meira en margan grunar.
Svona reglugerðarbreyting þarf að fara í formlegt ferli og afgreiðast bæði af Evrópuþingi og Ráðherraráði ESB.
Jóhanna Sigurðardóttir kom á sínum tíma í veg fyrir að almenningur gæti kosið um hvort við ættum að fara í aðildarumræður og kosning um inngöngu væri bara ráðgefandi en ekki bindandi ef hún væri sett fyrir þjóðina.
Það á greinilega að knésetja okkur og kúga inn í ESB, það er nokkuð ljós ásetningur ríkisstjórnarinnar. Það lítur út fyrir, með þessari reglugerðarbreytingu, að aðildarumsókn sé í raun formsatriði og ekkert annað.
Verum sterk litla þjóð og stöndum saman gegn alvaldinu!
![]() |
Útifundur gegn ESB |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (20)
15.7.2010 | 18:59
Hart barist um kvótann!
Úr grein nefndarmanns á svipan.is
Yfirvofandi séreignarréttur
Ef réttindunum yrði úthlutað til útgerða til langtímanýtingar myndi það líklega leiða til þess að kvóti einstakra útgerða yrði innan nokkurra ára að beinum eignarréttindum á grundvelli hefðarréttar. En skilyrðin fyrir því að óbein eignaréttindi í formi nýtingar-/afnotaréttar myndi beinan og óskoraðan eignarétt samkvæmt hefðarrétti eru að eignin sé annað hvort í einskis manns eigu eða opinberri eigu og hafa verið nýtt í 40 ára eða meira...... http://www.svipan.is/?p=9265
Á sama tíma er Össur að segja okkur að ESB komi ekki til með að samþykkja yfirráð okkar Íslendinga yfir fiskimiðunum okkar. En það telur hann í lagi - svo lengi sem við fáum evru.
Á sama tíma er verið að beita sömu aðferðum við að selja orkuna úr landi - HS orka til skúffufyrirtækis í Svíþjóð.
Á sama tíma er AGS að ýta undir allar þessar aðgerðir ríkisstjórnar. Ásamt fleirum sem munu koma okkur illa. Knésetja á heimilin vegna skulda og hækka skatta s.s. verðbólguaukandi virðisauka á matvæli.
Á sama tíma hefur heyrst (óstaðfest) að gangi Íslendingar í ESB undir þeirra kröfum verði Icesave málið fellt niður.
Ég veit ekki hvort þessi ríkisstjórn er að reyna að fá prik fyrir störf sín í þágu Íslands og almennings - persónulega er ég ekki sátt!
![]() |
Skýrslu um fiskveiðistjórn seinkar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
15.7.2010 | 10:22
AGS fyrir fólkið í landinu?
Datt það einhverjum í hug?
Forsprökkum AGS er nokk þokkalega sama um hverjum skal fórna til að þjóðarbúið fari í þrot. Nokkrar afdalahræður norður í hafsauga. Held að þeim sé sama.
Það er um tvennt að velja. Annaðhvort er þetta stóra og mikla bákn, IMF, svo illa áttað, að það sér ekki að sú hugmyndafræði sem það beytir og hefur lagt lönd í rúst, er ekki að virka.
Ég held ekki. Það er ekki mögulegt að þessir sérfræðingar í löngum röðum viti ekki betur.
Hinn möguleikinn er að þetta sé allt úthugsað ferli og það komi til með að hagnast þeim verulega í eigin þágu ef þjóðarbáknið fer algerlega í rúst. Þá geta þeir skóflað til sín auðlindunum og öllu því sem felur í sér eitthvað verðmæti hérna. Þá fer þetta að verða arðbært fyrir þá.
Gleymum því ekki að þeir hafa tekið fólk á teppið hérna fyrir að reyna að hjálpa fjölskyldunum í landinu. Það er enginn hagnaður í því fyrir þá. Að fólkt t.d. fái að búa í húsunum sínum í einhvern tíma eftir að það hefur verið tekið - slíkt hugnaðist þeim ekki og létu svo sannarlega vita af því. Auðvitað ekki opinberlega þó.
Svo koma þeir fram í fjölmiðlum og hæla stjórnvöldum fyrir aðstoð sína við heimilin - ja svei.
Nei - þeir eru ekki hér fyrir fólkið í landinu. Og ef þeir fá að halda sínu áfram, verður ekkert land eftir fyrir fólkið. Það er - nema fyrir auðvaldið.
![]() |
Sært dýr bítur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
15.7.2010 | 10:07
Eiga þessir menn endalaust að ganga lausir?
Mér vitanlega væri búið að stinga Jóni Ásgeiri og félögum í steininn fyrir löngu ef þeir hefðu drýgt syndir sínar annarsstaðar en á Íslandi. Og frysta og selja eignir þeirra uppí skuldir fyrir lifandis langa löngu. Og ég held að það hefðu farið lögfræðingar í það að finna eignir hans og verðmeta. Afhverju í ósköpunum á hann að gera það sjálfur. Heldur virkilega einhver að maðurinn stingi ekki undan eins og hann betur getur?
Persónulega skil ég ekki hvernig tekið er á fólki sem fremur svona glæpi. Það er eins og það sé bara ekkert mál. Bankarán innanfrá er semsagt leyfilegt. Eða í það minnsta eru viðurlögin ekki mikil. Þetta er nú ekki beint til að hindra það að þetta gerist aftur í framtíðinni.
En sért þú fátækur og stelir þér banana útí búð - þá máttu dúsa.
Merkilegt kerfi.
![]() |
Seldi fasteign degi fyrir frystinguna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
14.7.2010 | 19:19
Nákvæmlega - erfitt að ná yfirráðum yfir miðunum því ESB vilja þau.
Hvurn fjandann er Össur að gera þarna. Með aðra löppina í Kína og hina í Brussel. Kína gæti orðið mikilvægur markaður fyrir fiskinn sem hann ætlar að handselja ESB! Á meðan berst nefnd sem fjallar um kvótann fyrir því að hann verði endanlega einkavæddur og sjálfsagt ætlar LÍÚ sér góða hitu. (sjá greinar um vinnu nefndarinnar á svipan.is)
Fyrir hvað? EVRU?
Fólk í ESB er nú orðið verulega hugsandi. Þjóðverjar eru meira að segja að hugleiða að taka upp markið að nýju. Ekki sleppa Bretarnir Pundinu sínu. Það er ýmislegt sem ekki er að ganga upp í Evrulandi og það veit fólk mætavel.
Sjálfstæðismenn snúast fram og til baka í þessu máli. Fer sjálfsagt eftir því hvort samþykkt verður þessi eignaupptaka á fisikinum okkar. Ríkisstjórnin þegir þunnu hljóði yfir málum og málefnum þar til grasrótarhreyfingar og einstaklingar fara að berjast gegn málefnum. Þá allt í einu taka sig allir til og koma með yfirlýsingar hægri/vinstri.
Alltaf er treyst á það að málefnin komist ekki upp fyrr en of seint. Það er meira að segja svo mikilll þvautagangur á þessu liði að það sniðgengur lög eða "kannast ekki við þau".
Meðan hagfræðingar (sumir), Hreyfing og Framsóknarmenn efast um gæði AGS tilverunnar hér, sitja Sjálfstæðismenn hjá og bíða eftir sínum bita, benda á Steingrím. Ríkisstjórnin er hinsvegar alveg undirokuð þessu "almætti" enda telur hún sitt mál að leysa Icesave deiluna.
Fjárans fíflagangur segi ég nú bara. Með vel úthugsuðu efnahags- og fjármálakerfi, íslenskri krónu sem hentar íslensku hagkerfi og aulindunum okkar á sínum stað - getum við vel komist upp úr þessari lægð. Við erum það vel staðsett líka landfræðilega að staðsetningin sem slík er aulind útaf fyrir sig.
Það þarf bara að losna við fjárans klíkurnar sem öllu ráða og hugsa um lítið annað ein sig, sitt og sína. Fjármálaráðherrar síðustu ára, dýralæknir og jarðfræðingur.
Need I say more?
![]() |
Kína markaður fyrir fisk og ferðaþjónustu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)